top of page

Ævintýranámskeið í hlutverkaspilum

Hittingarnir eru ætlaðir börnum og ungmennum sem hafa áhuga á að kynnast alvöru ævintýraheimi þar sem hlutverkaspilin verða að veruleika. Frábært tækifæri til þess að taka þátt í spunaspili í raunheimum. Fyrstu hittingarnir snúa að undirbúningi og síðan munum við LARPa úti í leyniskógi.​​ Hentar öllum þeim sem hafa gaman af hlutverkaspilum (roleplaying games) eins og Dungeons and Dragons.

Inntökuskilyrði:

 

Info fyrir foreldra:

LARP er bæði gefandi og þroskandi, og reynir á sköpunargáfur, úrlausnir, samstarf og samskipti.

Info fyrir þátttakanda:

Þú færð tækifæri til þess að fara í karakterhlutverk og hugsa því á annan hátt en í daglegu lífi. 

 

Hvað við gerum:

Karaktersgerð: Þátttakendur útbúa karakter sem á heima í ævintýri eins og Lord of the Rings. 

Vopnagerð: 

Búningagerð: Snýst fyrst og fremst um hlutverkaleik og notum við mikið af því sem þegar er til heima. ​

Bardagaæfingar (MMA og Skylmingar?)

Larp kennsla (vera í karakter

Reglur:

Þátttakendur koma vel fram við hvort annað, virða persónu og rými annarra. Þótt að einhverjir séu óvinir í ævintýrinu, þá eru allir félagar í raunveruleikanum.

Við getum skoðað stöðuna í haust en við viljum tryggja öryggi kennara og allra barna og að upplifunin sé ánægjuleg. Við munum því ekki gefa neina afslætti á mörk í samskiptum (blót, rasísk ummæli, hótanir), ógnandi hegðun eða hvers kyns ofbeldi. Metum við síðan á undirbúningsdögunum hvort að börnin taka þátt í larp ævintýrinu um helgina. Þátttakendur sem ekki virða mörkin fá viðvaranir en er annars vísað úr Ævintýraheiminum.

Stjórnendur eru með síma og taka myndir af þeim sem leyfa. Larparar eru almennt ekki í símanum á meðan ævintýrin eiga sér stað.

Ævintýraheimurinn:

DRUMBABÓTASKÓGUR https://www.visir.is/g/20131638633d


 

Uppsetning á námskeiði

Umsjón: Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingur
               Karen G Elísabetardóttir sérkennari 

Kennari: Helgi Þór eigandi og forstjóri hjá Breki Ship service, ofurnörd og er reyndasti LARPari á Íslandi með yfir 17 ára reynslu af LARP frá Danmörku.

Fleiri kennarar eru á námskeiðinu bæði sem stjórnendur LARPs og hafa umsjón með þátttakendum og taka þátt í undirbúningi og ævintýrinu.
 
Uppsetning: Undirbúningsdagar í búninga-, vopna- og karaktersgerð. Skylmingarkennsla og æfingar. Stórt larp yfir helgi úti í skógi.

Verð: 45.000,-
25% afsláttur af næsta námskeiði og systkina afsláttur.
10% afsláttur af LARP vörum í Nexus.

Innifalið: Allur efniviður, vopnagerð og matur yfir LARP helgina. Leyfilegt að koma með aukasnarl. Heitt kakó á könnunni.

Staðsetning: Nexus spilasalur á undirbúningsdögum og nálægur Fantasíuskógur.

Upplýsingar fyrir foreldra

Sumarnámskeið fyrra 2. - 5. júní 2022

Sumarnámskeið síðara lok ágúst (auglýst betur)

 - afsláttur fyrir þá sem fara á bæði námskeiðin!

 

Undirbúningshittingar 2. og 3. júní fara fram í spilasal Nexus, Glæsibæ seinnipartinn eftir skóla. Helgina 4. og 5. júní er LARPað í Fantasíuskógi. Upplýsingar um virkni á námskeiðinu sjálfu, ljósmyndir og tilkynningum er póstað á lokaðan facebook hóp fyrir foreldra og unglinga. Linkurinn á hópinn er sendur í tölvupósti áður en námskeiðið hefst. 

Hægt er að hafa samband við okkur með tölvupósti eða með skilaboðum á facebook síðu Nexus Noobs. Á hittingunum sjálfum svörum við í Noobs símanúmerið 692-9992 eða með tölvupóst nexusnoobs@sentia.is

 

Hittingarnir byrja stundvíslega. Foreldrar sem sækja börnin sín mega koma 10-15 mín fyrr og hægt að fylgjast með virkni á námskeiðinu.

Að loknum sumarnámskeiðum er stefnt á að LARP námskeiðin halda áfram og LARPað verði mánaðarlega með minni kostnaði. Öllu verður útlistað betur á næstu vikum!

Greiðsla fyrir námskeið

Kennitala: 490315-2090

Reikningsnúmer: 0322-22-004309

Verð: 45.000,-kr

Námskeiðisgjald greiðist með frístundarkorti eða millifærslu á reikning og sendið staðfestingu með nafni þátttakenda á nexusnoobs@sentia.is​

Upplýsingar fyrir foreldra

bottom of page