top of page

Hlutverkaspil Drekar og Dýflyssur

Dungeons & Dragons

long_weapons.jpg
Sci Fi Dragon

Námskeiðið er haldið í spilasal Nexus. Foreldrar mega fylgjast með. Á fyrsta hittingi er farið yfir karakterinn sem þú lærir að spila og reglurnar í Dungeons og Dragons (fer eftir þátttakendum ). Ef þú ert með hugmyndir um karakter (sögu, mynd eða teikningu) þá endilega komdu með það með þér og dýflyssumeistarar skoðar hvort hægt er að setja karakterinn inn í ævintýrið. Þátttakendur móta söguna! Mikilvægt að mæta á réttum tíma til þess að missa ekki af ævintýrinu.

Spilamennskan hefst því strax og karakterar eru tilbúnir og lærum við mest á því að í spila. Mikilvægt er að spyrja því dýflyssumeistarann hvenær sem er þegar eitthvað er óljóst eða ef þú vilt aðstoð. Við spilum í í 4 klst. yfir daginn og er því gott að koma með nesti meðferðis. Allt leyfilegt, nema ef annað sé tilgreint. Sumir vilja koma með eigin teninga en annars sköffum við allt sem þarf og ef eitthvað sem vantar þá verður því reddað. 

Reglurnar á námskeiðinu eru þessar:
#1 Við komum vel fram hvert við annað og virðum mörk
#2 Við fylgjum reglum dýflyssumeistarans
#3 Við geymum að kíkja í símana þangað til að hittingur er búinn (nema ef eitthvað sérstakt)
#4 Allan tímann er leyfilegt að standa upp og hreyfa sig eða snarla

​GÓÐA SKEMMTUN! :)

bottom of page